1.2.2010 | 11:12
Gönguskíðagarpar
Þá eru allir komnir í hús heilir á húfi eftir að hafa arkað um á gönguskíðum frá því klukkan 8:30. Krakkarnir okkar voru öll að fara í fyrsta skipti á gönguskíði utan Oddný Helga. Sýndu allir mikil tilþrif og fannst mörgum æðislega gaman. Virtist það koma þeim mjög á óvart hversu skemmtilegt væri að vera á svona skíðum. Einhverjir voru líka steinhissa á því hversu lítið mál væri að detta þegar allir hinir væru líka að detta. Oddný og Ólöf fóru í göngu fyrir lengra komna og örkuðu 19 km og er sú eldri frekar þreytt og sveitt þrátt fyrir frostið. Núna erum við að fara í hádegisverð og svo beint í rútu til að komast í bobsleðabrautina.
Í morgun þá reiknuðum við Ólöf og Ósk með því að erfitt yrði að vekja okkar fólk eftir langan og strangan dag. Fórum við því af stað um 7:45 og börðum íbúðirnar að utan án þess að nokkur hreyfing yrði. Ekki leist okkur vel á það og fórum niður í lobbý til að athuga hvort einhverjir væru komnir í mat..... og viti menn. Allir voru komnir nema við tvær...alveg á síðustu stundu....svona var nú það bara flottir krakkar.
Bloggum meira í kvöld ....kveðja
Um bloggið
Ólöf Sigurbjörg Sigurðardóttir
Tenglar
Mínir tenglar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ hæ
HAHA - ekkert mál að vakna þegar það er gaman :D
Ætli þau taki ekki úr þreytuna í fyrsta tíma á föstudag...
Kveðja
Bylgja
Bylgja (IP-tala skráð) 1.2.2010 kl. 11:29
En krúttlegt - þetta eru svo góðir krakkar
Ásta (IP-tala skráð) 1.2.2010 kl. 15:06
Frábært að sjá myndirnar af krökkunum. Brrr... það virkar frekar kalt.
Íris (Styrkár) (IP-tala skráð) 1.2.2010 kl. 19:40
Mikið er gaman að fá fréttir og myndir af þessum hressu krökkum. Eins gott að klæða sig vel í kuldanum. Hér syðst á landinu er 3.stiga hiti og allir að kvarta yfir kulda. Sérstakar kveðjur til Alexöndru ömmu stelpu héðan úr sveitinni.
Amma Magga
Margrét Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 1.2.2010 kl. 19:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.