Á morgun leggjum við í hann lalallala

Þá er heldur orðið stutt í brottför en við ætlum að hittast í Leifsstöð klukkan 5:20 í fyrramálið.  Það verða allir að fara að sofa snemma í kvöld því enginn má verða seinn. Til að tryggja það að þeir geti setið saman í flugvélinni sem það vilja þurfum við að vera mætt snemma.

Símanúmerið  hjá okkur fararstjórunum sendi ég í tölvupósti á foreldrana núna á eftir. Við viljum samt biðja foreldra um að stilla símhringingum í hóf - hringja ekki nema nauðsyn sé vegna kostnaðar Smile við sendum reglulegar fréttir hér á blogginu og einnig er hægt að senda okkur tölvupóst á netföngin okkar.

Ég fékk ekkert svar varðandi handklæðin svo að endilega skellið einu slíku í töskuna. 

Við minnum ykkur líka á að taka með ykkur spil til að spila á kvöldin og frábært væri ef einhver gæti skellt nýrri íslenskri tónlist á ipodinn til að spila fyrir krakkana frá hinum löndunum.

Fánar.... við tökum auðvitað með okkur íslenska fánann...við gætum þurft að halda upp á Gullverðlaunin á EM...og þá þurfum við sko að hafa fánann ....Áfram Ísland....  taka fána þeir sem eiga...

Nestið... góð hugmynd kviknaði hjá einhverjum í gær...baka pizzu í dag og skera í litla bita...frábær á morgun...

Veðrið.... ísssskallllt í Noregi...það eina sem skipuleggjandinn í Lillehammer vildi minna á.  Koma vel klædd  - það er töff að vera vel klæddur á vetraríþróttahátíð Cool 

Einkaveðurfræðingurinn okkar hann Einar ætlar að gera sérstaka veðurspá fyrir okkur síðar í dag. Gott mál !

 

Sjáumst á morgun! Heia Norge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólöf Sigurbjörg Sigurðardóttir

Höfundur

Lillehammerbloggið
Lillehammerbloggið
Þetta er ferðablogg 9.bekkjar Sjálandsskóla í Garðabæ. Krakkarnir eru á leið á vetraríþróttahátíð í Lillehammer í Noregi 31.janúar - 4.febrúar. Þangað er boðið einum bekk af unglingastigi frá hverju norðurlandanna, Eistlandi, Lettlandi og Litháen.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Noregur (73)
  • Noregur (72)
  • Noregur (66)
  • Noregur (65)
  • Noregur (64)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband